Leit á vefnum
Niðurstöður leitar: „leyfi“
77 svör fundustHefur EES-aðild Íslands einhver áhrif á íslenska tungu og mundi eitthvað breytast ef við færum í ESB?
Í krafti aðildar að Evrópska efnahagssvæðinu (EES) taka Íslendingar þátt í mennta- og vísindaáætlunum Evrópusambandsins og hefur íslensk menning og íslensk tunga notið þess á ýmsan hátt. Þar má t.d. nefna þátttöku í verkefninu META-NET á árunum 2011-2013. Markmið þessa verkefnis var einkum að koma upp rafrænum mál...
Hvaða Norðurlönd hafa evru sem gjaldmiðil?
Finnland er eina Norðurlandið sem hefur evru sem gjaldmiðil. Danmörk er undanþegin ákvæði Maastricht-sáttmálans um upptöku evru, þar sem ríkið samdi sérstaklega um það fyrir gildistöku hans. Svíþjóð hefur í raun tekið einhliða ákvörðun um að standa utan evrusvæðisins. Ísland og Noregur, sem ekki eru aðilar að Evró...
Hvernig eru lögin á Íslandi í sambandi við litmerkibyssur og hvernig eru þau á Norðurlöndunum og hjá Evrópusambandinu?
Á Íslandi gilda reglur um litmerkibyssur (e. paintball guns eða markers) sem settar voru af dóms- og kirkjumálaráðuneytinu 26. júní árið 2000. Reglurnar taka meðal annars til þess hvar megi nota litmerkibyssur, hverjir megi nota þær og hvernig vörslu þeirra skuli háttað. Á hinum Norðurlöndunum er að finna svipaðar...
Er Seðlabanki Evrópu einkabanki?
Nei, Seðlabanki Evrópu er ekki „einkabanki“ samkvæmt almennri skilgreiningu á hugtakinu, það er bankinn er ekki viðskiptabanki í eigu einkaaðila. Seðlabanki Evrópu er ein af stofnunum Evrópusambandsins og þungamiðja seðlabankakerfis Evrópu (e. European System of Central Banks, ESCB), sem er vettvangur samstarfs se...
Er viturlegt að fjárfesta í evrum?
Spurningu eins og þessari verður að sjálfsögðu ekki svarað með já-i eða nei-i. Svarið fer meðal annars eftir markmiðum fjárfestisins, aðstæðum hans og kunnáttu. Þegar fjárfestingin er veruleg er fólki eindregið ráðlagt að fylgjast vel með gangi mála kringum þann miðil sem valinn er. *** Sá sem ætlar að leggj...
Getur verið að umræðan um ESB hafi það markmið að ræna Íslendinga borgaralegum réttindum og gera þá að þegnum í hinu nýja heimsveldi?
Í fljótu bragði mætti svara þessari spurningu neitandi vegna þess að umræða hafi ekki markmið, heldur fólk. Þar fyrir utan mætti telja hæpið að umræða geti yfirleitt rænt fólk réttindum; það séu réttindi fólks að fá að taka þátt í umræðu og hún sem slík geti naumast gengið svo berlega gegn eðlilegum tilgangi sínum...
Er ekki rétt skilið að tollar á vörum milli ESB-ríkja falla niður við inngöngu í ESB, til dæmis þegar vara er pöntuð á Netinu?
Jú, þetta er rétt skilið. Innflutningstollar á vörum sem fluttar eru inn til landsins frá ESB-ríkjum mundu falla niður við aðild Íslands að ESB, það er að segja þeir tollar sem ekki hafa verið afnumdir nú þegar með EES-samningnum. Þetta gildir hvort sem vörurnar eru pantaðar á Netinu, í gegnum síma eða einstakling...
Mun áfengisverð lækka ef við göngum í ESB?
Það er fátt sem bendir til þess. Núgildandi íslenskar reglur um álögur á áfengi eru í samræmi við reglur Evrópusambandsins og mundi áfengisverð því ekki lækka af þeim sökum. Þá eru allar líkur taldar á því að Ísland gæti samið um að viðhalda ríkiseinkasölu á áfengi, á grundvelli fordæma sem gefin voru í aðildarvið...
Hvernig er hægt að túlka goðsöguna um Evrópu?
Þegar á 5. öld hafði sagnaritarinn Heródótos skýrt söguna um brottnám Evrópu frá Fönikíu sem táknsögu. Kríteyingar hefðu rænt Evrópu sem lið í verslunardeilu. Taldi Heródótos að Trójumenn hefðu rænt Helenu, eiginkonu Menelásar konungs í Spörtu, í hefndarskyni og tengdi þannig söguna um brottnám Evrópu við goðsögni...
Er hægt að senda kæru til Mannréttindadómstóls Evrópu á móðurmálinu og hvernig á að standa að kærunni?
Upprunalega spurningin hljóðaði svona: Er hægt að senda kæru til mannréttindadómstóla á móðurmálinu? Hvernig á að standa að kæru? Sá mannréttindadómstóll sem hefur langmesta þýðingu fyrir okkur á Íslandi er Mannréttindadómstóll Evrópu og er svar þetta því skrifað út frá gildandi reglum hans. Mannréttindadóm...
Er Lettland aðili að Evrópska efnahagssvæðinu?
Já, Lettland er aðili að Evrópska efnahagssvæðinu, eins og öll önnur aðildarríki Evrópusambandsins, og hefur verið það síðan það gekk í sambandið árið 2004. Lettland er meðal þeirra fyrrum Sovétríkja sem hafa leitað nánari tengsla við Vesturlönd eftir að hafa endurheimt sjálfstæðið sitt á ný í upphafi tíunda áratu...
Hvernig er einfaldasta skýringin á verðbólgu og hvað er „mínus“-verðbólga?
Eitt af hlutverkum peninga er að vera mælieining á verðmæti. Þessi mælieining hefur þó þann galla, ólíkt til dæmis mælieiningum metrakerfisins, að vera síbreytileg. Stundum er hægt að kaupa minna fyrir ákveðinn fjölda króna nú en áður. Þetta þýðir að mælieiningin hefur breyst og það er almennt kallað verðbólga. Ei...
Hvað eru verðbætur?
Með verðbótum er átt við að reynt er að taka tillit til breytinga á verðlagi þegar fjárupphæðir eru reiknaðar og bæta þeim sem á að fá fé verðlagsbreytingu þannig að hann geti keypt það sama fyrir féð með verðbótum og hann hefði getað keypt fyrir féð án verðbóta ef verðlag hefði ekkert breyst. Breytingar á verðlag...
Hvað gerir framkvæmdastjórn ESB?
Hlutverk framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (European Commission) eru skilgreind í 17. grein sáttmálans um Evrópusambandið. Í fyrsta lagi er hún handhafi framkvæmdavalds. Ekki síst á sviði samkeppnismála geta ákvarðanir framkvæmdastjórnarinnar haft víðtæk áhrif en hún getur meðal annars komið í veg fyrir samruna...
Hvenær lauk kalda stríðinu?
Kalda stríðinu er almennt talið hafa lokið á tímabilinu 1989 til 1991 og er þá gjarnan miðað við atburði eins og fall Berlínarmúrsins í nóvember árið 1989, sameiningu Þýskalands árið 1990 og svo hrun Sovétríkjanna í desember árið 1991. Síðasti atburðurinn hefur oftast verið hafður til viðmiðs enda var þá annað ...