Spurning

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn

Spyrjandi

Evrópuvefur

Svar

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (e. International Monetary Fund, IMF), líkt og Alþjóðabankinn (e. World Bank), var stofnaður árið 1944 í kjölfar Bretton Woods fundarins, þar sem 49 af ríkustu löndum heims komu sér saman um leikreglur í alþjóðaviðskiptum.

Meginmarkmiðið með stofnun Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var að fyrirbyggja sveiflur í alþjóðahagkerfinu og koma í veg fyrir fjárhagskreppur ríkja. Þau lönd sem óska eftir aðild að Alþjóðabankanum eru skyldug til að vera einnig aðili að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum en alls eru 187 ríki aðilar að sjóðnum. Hefð er fyrir því að stjórnarformaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sé evrópskur en bankastjóri Alþjóðabankans sé bandarískur.

Frá stofnun hefur meginmarkmið sjóðsins verið að efla alþjóðlega samvinnu í gjaldeyrismálum, stuðla að stöðugu gengi mynta og greiða fyrir frjálsum gjaldeyrisviðskiptum í heiminum. Sjóðurinn metur efnahagsástand í aðildarríkjum sínum árlega.

Starfsemi sjóðsins er einkum þrenns konar:

  • Hann hefur eftirlit með efnahagsmálum aðildarríkja sjóðsins og alþjóðahagkerfinu í heild.
  • Hann veitir aðildarríkjum tæknilega aðstoð.
  • Hann veitir aðildarríkjum í greiðsluerfiðleikum lán.

Seðlabanki Íslands er fjárhagslegur aðili að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum fyrir hönd íslenska ríkisins en Ísland á í samstarfi við Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin á vettvangi sjóðsins. Þessi lönd mynda eitt af 24 svonefndum kjördæmum sjóðsins.

Höfuðstöðvar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru í Washington í Bandaríkjunum þar sem daglegur rekstur stofnunarinnar fer fram.
Við þetta svar er engin athugasemd Fela